422 4040
tools@tools.is
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 10.000 kr
Facebook Instagram
  • Um okkur
  • Hafa samband
Til baka á fyrri síðu
Heim

Skilmálar

Skilmálar

Um vefsíðu þessa, tools.is gilda eftirfarandi skilmálar

1. Skilafrestur og endurgreiðsla

Heimilt er að skila vöru innan 14 dögum frá kaupdagsetningu og er háð því að varan sé í upprunalegu ástandi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Framvísa þarf kvittun fyrir kaupunum.

Skilaréttur á hvorki við um útsöluvörur, notaðar vörur eða sérpantanir. Kaupandi greiðir sendingarkostnað fyrir vörur sem á að skila. Ef vöru er skilað eftir að útsala er hafin er miðað við útsöluverð vörunnar.

2. VErð

Verð í vefverslun eru með virðisaukaskatti og geta breyst án fyrirvara. Reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Allar vörur í vefverslun eru birtar með fyrirvara um villur í verði, magni eða texta.

3. Netgreiðslur í vefverslun

Tools.is (3C ehf) býður viðskiptavinum sínum að greiða fyrir vörukaup með greiðslukortum í vefverslun sinni í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Örugg greiðslusíða gerir söluaðilum kleift að taka við kreditkortagreiðslum á einfaldan og öruggan hátt. Kaupandi velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og við greiðslu er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu, berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila.

Söluaðili Tolls.is (3C ehf) sem nýtir sér örugga greiðslusíðu, tekur hvorki við né geymir kortanúmer viðskiptavina sinna.

4. Ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við lög um neytendakaup. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgðartími gildir frá dagsetningu reiknings.

Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en verkstæði Tools.is (3C ehf), búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun, orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.

Staðfesta þarf ábyrgð með framvísun á reikning fyrir kaupunum.

5. Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði og allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp eru trúnaðarmál og verða aldrei afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

6. INNSKRÁNING MEÐ FACEBOOK EÐA GOOGLE

Með því að skrá þig inn á vefsíðu Tools.is í gegnum Facebook eða Google, samþykkir þú að Tools.is (3C ehf) fái aðgang að eftirfarandi upplýsingum, séu þær aðgengilegar á Facebook/Google reikningi þínum:

  1. Fullt nafn
  2. Netfang

Tools.is (3C ehf) notar þessar upplýsingar til þess að stofna aðgang þinn að www.tools.is og deilir þeim ekki með öðrum.
Með því að nota innskráningu í gegnum Facebook eða Google á www.tools.is samþykkir þú þessa skilmála.

7. ALMENNT

Tools.is (3C ehf) áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu á pöntun t.d. vegna rangra verð- eða magnupplýsinga sem koma fram í vefverslun. Þetta á einnig við ef villur koma upp í reiknireglum vefverslunar. Einnig áskilur Tools.is (3C ehf) sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á einstakar vörur eða vörutegundir fyrirvaralaust.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Tools.is er rekin af 3C ehf.
Kt. 510707-0600
Vsk. nr. 94916

Lögheimili og varnarþing 3C ehf. er á Selfossi.

Skráðu þig á póstlistann
og fá tilboðin send til þín

🤞 Ekki missa af neinu!

Við sendum þér aðeins mikilvægan póst, engan ruslpóst!
Sjá meira í meðferð persónuupplýsinga

Skoðaðu pósthólfið eða spamhólfið til að staðfesta skráningu þína.

Eyravegur 67, 800 Selfoss
Netfang: tools@tools.is
Sími: 422 4040

Facebook Instagram

Fyrirtækið

Um okkur

Hafa samband

Skilmálar

Meðferð persónuupplýsingar